Top Local Places

Heiduberg

Kirchboden 139, Wagrain, Austria
Attractions/things to do

Description

ad

"Heiðuberg" er  íbúð í miðri skíðaparadís í Wagrain, Austurríki.  Í íbúðinni, sem er á þriðju hæð, eru tvö stór fjölskylduherbergi með baði, eitt lítið herbergi með tvíbreiðu rúmi, svefnsófa í stofu og auka salerni. Þvottavél er í öðru baðherberginu. Skíðageymsla er í kjallara hússins. Bílastæði fyrir 1-2 bíla fylgja íbúðinni. Skíðasvæðið "Flying Mozart" er í göngufæri (200m) frá íbúðinni ásamt því að skíðastrætó fyrir önnur svæði stoppa rétt hjá.
Svæðið er ekki síður skemmtilegt á sumrin enda svæðið fallega grænt, veðrið gott og óendalegir möguleikar á ýmiskonar útivist. Svæðið hentar vel barnafólki þar sem lítill sundlaugagarður er nánast í bakgarði íbúðarinnar ásamt tennisklúbbi auk þess sem að skíðasvæðunum er breytt í paradís fyrir börn.

http://www.bergfex.com/wagrain/

CONTACT

Quiz

NEAR Heiduberg